RANNSÓKNIR — ÞRÓUNARSTARF — SAMSTARF — FAGLEG UMRÆÐA


,

Félag um menntarannsóknir stóð nýlega fyrir opnum nestisfundi í samvinnu við námsleiðina Menntun, forysta og fræðslustarf á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Viðfangsefni fundarins var framtíðarsýn um læsi í íslenskum grunnskólum, en umræðan átti sér stað í Sögu sem og í beinu streymi.

Tilefni fundarins var umræða sem átt hefur sér stað um lestrarkennslu og niðurstöður alþjóðlegra kannana á undanförnum misserum. Aðstandendur fundarins vöktu athygli á því að í þeirri umræðu hafi gjarnan gætt einfaldra skýringa og skyndilausna þar sem horft er til einstakra aðferða fremur en heildstæðrar sýnar á menntun.

Fræðileg sjónarhorn og faglegt sjálfstæði

Á fundinum fluttu þrír sérfræðingar stuttar framsögur sem vörpuðu ljósi á ólíkar hliðar viðfangsefnisins:
Rúnar Sigþórsson, prófessor emeritus.
Kristín Jóhannesdóttir, sviðsstjóri fræðslu- og lýðheilsusviðs Akureyrarbæjar.
Ómar Örn Magnússon, skólastjóri Hagaskóla.

Framsögumenn lögðu áherslu á að framtíðarsýn í lestrarnámi yrði að byggja á víðara hugtaki um læsi. Meðal þeirra þátta sem dregnir voru fram voru mikilvægi þess að virða faglegt sjálfstæði kennara, tryggja jafnræði til náms og hlúa að lestraránægju ungs fólks.

Markmið fundarins var að skapa vettvang fyrir fræðilega upplýsta umræðu þar sem horft er til langtímasjónarmiða fremur en skammtímalausna. Fundurinn var vel sóttur af fjölbreyttum hópi fólks, þar á meðal kennurum, skólastjórnendum, fræðimönnum og sveitarstjórnarfólki, sem endurspeglar ríkan áhuga á þróun læsis í íslensku skólakerfi. Félag um menntarannsóknir þakkar framsögumönnum og gestum fyrir líflegar og mikilvægar umræður sem munu vafalaust nýtast í áframhaldandi þróun menntamála á Íslandi.